22. des. 2007 |
Ég óska mér að mæður hætti að drepa |
Að venju sendi ég um fimm sinnum fleiri jólakort en ég fæ. En það er ekki magnið sem skiptir máli heldur gæðin, og þá á ég við gæði þeirra korta sem til mín berast.
Kortið sem ég fékk í dag var sérstaklega fallegt. Þar rakti Palli kynni okkar frá því við hittumst fyrst á fylleríi fyrir fjölda ára. Síðan þá höfum við unnið saman, setið sömu kúrsana í háskólanum og loks stutt hvort annað í veikindum á árinu sem er að líða. Þetta er sumsé fylleríissaga sem endar á hugljúfu nótunum.
Á tímum þar sem jólakortasiðurinn er á undanhaldi er dásamlegt að fá persónulega kveðju sem þessa í skammdeginu.
Sjálf var ég ekki jafn ítarleg í skrifum. Innan í jólakort Femínistafélagsins ritaði ég tilvitnun í Spámanninn, að venju. Enginn fékk þó kort þar sem Askasleikir óskar sér að karlar hætti að nauðga, einfaldlega því ekkert slíkt kort er til.
Ég annars óska þess að mæður hætti að drepa börnin sín. Það væri skref í rétta átt.
En þið mæður sem ekkert barn hafið drepið; Látið mig vita ef þetta snertir ykkur illa. Ég við auðvitað engan móðga svona fyrir jólin. |
posted by ErlaHlyns @ 16:21 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|