15. des. 2007 |
Strange days |
Síðustu daga hef ég verið sérlega netsambandslaus. Því var nauðsynlegt að sóa tímanum á annan hátt en venjulega.
Í dag hef ég ryksugað, þvegið þvott, vaskað upp, keypt harðfisk í Kolaportinu, hringt í vin minn í útlöndum sem ekki hefur heyrt frá mér vikum saman og boðið í kaffi konu sem ég hef ekki séð svo mánuðum skipti.
Þetta var farið að minna ískyggilega á dugnað minn þegar ég sagði upp netáskrift til að láta ekki truflast í lokaritgerðarskrifum.
En nú er netið komið í samt lag og ég vonandi sömuleiðis.
Mér varð annars hugsað til framtíðarmyndarinnar Strange Days með félaga Ralph Fiennes. Hún er frá 1995 en sögusviðið er árið 1999 þar sem viðskipti með hugsanaupptökur voru arðbærleg. |
posted by ErlaHlyns @ 17:15 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|