11. des. 2007 |
Mannorð Atla Gíslasonar |
Sérstaka athygli mína vakti frétt Stöðvar 2 í kvöld um styr þann sem staðið hefur um sölu Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar á fasteignum á svæðinu.
Fréttina má nálgast á vefvarpi Vísir.is en til hægðarauka fer hún hér á eftir.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, vísar því á bug að hann hafi farið með ósannindi og dylgjur í gagnrýni sinni á Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Hann sakar stjórnarmann félagsins um að koma höggi á sig persónulega.
Höskuldur Kári Schram:
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hélt kynningarfund á Miðnesheiði í gær. Á fundinum lét Stefán Þórarinsson, stjórnarmaður í félaginunu, þung orð falla í garð Atla Gíslasonar þingmanns, en Atli hefur gagnrýnt vinnubrögð félagsins við sölu eignanna. „Ég hafna öllum dylgjum, ef við getum kallað það, að hér hafi eitthvað óeðlilegt farið fram, um einhverja spillingu eða slíkt eins og fram hefur komið, sem mér finnst mjög ógeðfellt." [Tilvitnun í Stefán lýkur. Innskot mitt.]
Atli Gíslason vísar þessum ásökunum á bug. „Ég svara því þannig að þetta séu andsvör rökþrota manna. Þeir tala um að (Ath.) ég dylgjur, þeirr tala um að ég fari með ósannindi og þeir tala um að ég fari með mannorð þeirra. Þeir finna þessu hvergi stað í orðum mínum. Það er verið að drepa sendiboða válegra tíðinda og þetta er þekkt aðferð í pólitík, að reyna að koma höggi á mig persónulega og leiða athyglina að persónu minni með einhverjum meintum ávirðingum mínum, en tala ekki um málið efnislega. [Tilvitnun í Atla lýkur. Innskot mitt.]
Ég geri ráð fyrir að almenningur sé það glöggur að finna ekkert samasemmerki á milli þessarar tilvitnunar í Stefán og svo andsvars Atla. Einhverjir hafa jafnvel hugsað með sér: „Nú er hann Atli alveg að tapa glórunni!", „Stefán talar hvergi nokkurs staðar um persónu Atla!"
Þeir sem hafa horft á frétt Stöðvar 2 sjá hins vegar að Atli heldur þar á blaði þar sem ógreinilega sést fyrirsögnin Vanþekking þingmanna sorgleg. Ég þekki fyrirsögnina því ég skrifaði hana. Því veit ég að hún er í DV í dag. Og einmitt þar má segja að Stefán vegi að persónu Atla.
En hann gerði það ekki á fundinum. Hann gerði það eftir fundinn, í prívatviðtali við mig. Í viðtali við DV sem var birt í dag. Af einhverjum ástæðum þykir Stöð 2 þó ástæða til að sleppa þessum veigamiklu upplýsingum í fréttinni sem lætur Atla líta, vægt sagt, undarlega út.
Eða hvað finnst þér?
Það var síðast í gær sem DV vitnaði í annan miðil, þá Ríkisútvarpið, þegar ekki náðist í viðmælanda sem skipti máli fyrir frétt um meintan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Auk þess var tekið fram að DV hefði ekki náð tali af viðkomandi við vinnslu fréttarinnar. Engum fréttamiðli er til vansa að æskilegur viðmælandi svari ekki fyrirspurn á þeim tíma sem frétt er unnin. Öðru máli þykir mér gegna um að birta aðeins hálfa frétt. |
posted by ErlaHlyns @ 22:43 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|