Hugleiðingar konu v. 6.0
 
12. nóv. 2005


Partítröll


Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.


Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.


Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.


Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða tröll ert þú?



Ég á ekki iPod, á ekki Fred Perry póló bol og á ekki Adidas skó.
Ég horfði á fyrstu seríu O.C. núna nýlega þegar hún var endursýnd í Nátthröfnum á Skjá Einum. Ég varð hooked og vakti eftir þættinum á hverju virku kvöldi. Núna er ég komin með leið...

Annars er ég auðvitað afar hrifin af teitum og samkundum hverskonar.
Jú, ætlí ég sé ekki bara partýtröll - já, og viðkvæmt blóm.
posted by ErlaHlyns @ 01:27  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER