Hugleiðingar konu v. 6.0
 
24. des. 2007
Meistarasósa á síðbúnar kartöflur
Ég hafði fengið fyrirmæli um að mæta á kaffistofu Samhjálpar klukkan 11 og kom auðvitað stundvíslega því áður fékk ég dágóða lýsingu á hvar hún væri nú til húsa. Frá 11. desember hefur kaffistofan verið að Borgartúni 1, með útsýni yfir sjóinn.

Mitt fyrsta verkefni var að búa til sósu. Samstarfsmaður minn þennan daginn spurði hvort ég væri ekki lunkin í sósugerðinni. Ég hélt það nú enda vildi ég ekki að upp kæmist um reynsluleysi mitt sem húsmóðir. Uppbökuð jólasósa skyldi það vera.

Eftir stuttlega leit velti ég fyrir mér hvort fræðilega mögulegt væri að gera slíka sósu með aðeins hveiti, svínakraft, og létt og laggott við höndina.

Þegar betur var að gáð fann ég hins vegar, mér til mikillar gleði, sveppasósuduft frá Euroshopper, sveppasúpudósir frá Campbells og gervirjóma sem á stóð að væri „better than fresh cream.“ Og úr varð hin fínasta sósa.

Engin var örtröðin þegar hamborgarhryggurinn var borinn á borð. Mér reyndari aðilar sögðu óvenju fáa hafa komið í ár, líklegast því fólk annað hvort veit ekki að kaffistofan er opnuð aftur í nýjum húsakynnum eða því það veit ekki hvar þau eru.

Suðan á kjötinu var heldur lengi að koma upp og seinkaði hefðbundu borðhaldi um klukkustund. Nokkrir spurðu kurteisislega hvenær maturinn kæmi og þegar ég sagðist ekki hreint viss fékk ég alloft að heyra að það væri nú aldeilis í góðu lagi: „Ég hef nægan tíma,“ „Ég er ekkert að flýta mér.“

Þegar maturinn loksins kom var fólk fljótt að fylla diskana og taka til við að matast. Flestir voru komnir vel á veg þegar við í eldhúsinu gerðum hryllilega uppgötvum - við höfðum gleymt að setja kartöflurnar á borðið! Þeim var því skellt á fat og gestum bent á að loks væri máltíðin fullkomnuð.

Ég veit ekki hvað yrði sagt á mínu heimili ef engar væru kartöflurnar á aðfangadag. En sumir eru nægjusamari en aðrir.

Og sósan. Hún fékk þessa líka fínu dóma!

Gleðileg jól!
posted by ErlaHlyns @ 16:16  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER