18. apr. 2007 |
Hálfur sannleikurinn |
Í hverri flösku eru 200 grömm af því besta úr grænmeti og ávöxtum.
Þessari fullyrðingu er haldið að okkur í flestum auglýsingatímum þessa dagana þar sem hollusta Vie frá Knorr er ítrekuð.
Þetta er þó helber lygi, og sést það einna best á því að í hverri flösku eru aðeins 100 ml. Þessir 100 ml eru hinsvegar fengnir úr því sem Knorr kallar það besta úr 200 g af grænmti og ávöxtum.
Á vefsíðu Knorr halda lygarnar áfram: Í Knorr Vie eru nákvæmlega 200g af öllu því besta og hollasta úr grænmeti og ávöxtum.
En kannski er þetta bara smá hagræðing á sannleikanum. Þetta passar jú allt ef fólk drekkur tvær flöskur í einu. |
posted by ErlaHlyns @ 00:17 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|