7. jún. 2007 |
Olli usla |
Mjólka veldur usla er fyrirsögn fréttar á síðu 2 í Blaðinu í gær.
Mjólka lagði fram kæru á hendur Mjólkursamsölunni fyrir brot á samkeppnislögum.
Er það almennt talið valda usla að vekja athygli á meintum lögbrotum? Hver er það sem veldur uslanum í raun?
Þó að mér sé ekki fullkomlega kunnugt um alla málavöxtu í þessu tilviki leyfi ég mér að velta vöngum.
Ef ég væri rík og fræg, og legði fram kæru vegna innbrots, yrði fyrirsögnin þá: Erla Hlynsdóttir veldur usla? |
posted by ErlaHlyns @ 00:26 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|